Friday, December 25, 2009

-illgresi-


þú sefur alveg til hádegis
þú deyrð en lifnar við
laufblöðin breyta um lit

þú finnur til - ferð á fætur
íklæddur regnkápu - þú heldur út í skammdegið

þú rífur úr hjartarætur sem þú treður á
með hendur í vösum, með nóg kominn
í votu grasinu geng þangað til

það skín á mig í gegnum trjágreinar
lít upp og lifna við - laufblöðin breyta um lit

við finnum yl, festum rætur
afklæðum úr hjörtum
við höldum út í góðan dag

gróðursetjum og gefum líf og við springum út
með hendur úr vösum í mold róta
núna fjarlægjum við hugsun ljóta

tíminn lagar allt, gefur líf, kyndir upp bál
loga sálar
ekki lengur kalt, hef aftur líf
lifnar mín sál, heiminn mála

No comments:

Post a Comment